Opið bréf til Apple á Íslandi:
27.Maí 2006
"ER ÉG KÚKUR Í LAUGINNI?"
-Fæ ekkert bréf!
Til þeirra er málið varðar,
Mig grunar að það sé fljótlegra að senda ykkur bréf (snail mail) heldur en að bíða á hold í símanum eða reyna að fá heilsteypt svar í tölvupósti, ég ákvað því að skrifa ykkur eitt slíkt.
Ég er dyggur viðskipavinur Apple á Íslandi en þjónustan sem þið veitið er afar slök.
Þó að vörurnar ykkar séu í topp flokki haldast "gæði vara" og "gæði þjónustu" greinilega ekki í hendur hjá ykkar fyrirtæki. Þegar viðskipavinur spyr einhverra spurninga er ekki nóg að svar bara: "eh… ég veit það ekki :s " og gera svo ekkert meira í málunum. Á öðrum þjónustustöðum þegar "nýliðar", sem vita auðvitað ekki allt einn tveir og tíu, eru að afgreiða ætti að kenna þeim strax að segja "augnablik ég er nýr hér, ég skal athuga þetta fyrir þig". Heldur en að láta kúnnan bara þurfa komast að þessu og hinu af eigin rammleik.
Hvað varðar þjónustu á verkstæði, eruð þið löngu búnir að springa! Eftirspurnin er orðin svo mikil að fólk er farið að þurfa að bíða eftir þjónustu í hátt uppí 9 mánuði! Er það ásættanleg þjónusta?? Ég bara spyr! Hvernig væri að ráða fleira starfsfólk í viðgerðir… eða bara í símsvörun? Hmm? Er það svo fáránleg hugmynd.
Eruð þið með einkarétt á apple verkstæðum á íslandi? Kannski maður ætti að kanna það og opna eitt sem býður viðskiptavinum apple almennilega þjónustu.
Þið hljótið að vita sitthvað um tölvur þar sem þið vinnið við viðgerðir á þeim, eitt skal ég segja ykkur, MEDION er merki sem er þekkt fyrir að BILA MJÖG mikið! Allt tölvufólk veit það! Bms er með verkstæðið fyrir medion. Ég á einnig eina drasl medion tölvu sem ég verð að eiga sökum þess að eplið mitt er ekki intelbased (aðeins of fljót að kaupa það). Einnig neyðist ég til að nota ýmislegt frá microsoft í skólanum, ég keypti medion tölvuna notaða innan við árs gamla og það var nú þegar hitt og þetta búið að bila í henni. Ég fór með vélina til bms og sagði þeim að viftan og geisladrifið væri bilað í vélinni og að mig vantaði allavega viftuna mjög fljótt vegna þess að ég varð að nota tölvuna í skólanum. Þeir sögðust ekki eiga viftuna til á lager en gætu kíkt á hvað þetta væri og gaurinn bara kíkti á þetta á staðnum, reddaði mér viftu, skráði niður þjónustubeiðni í sambandi við geilsadrifið og lofaði að hafa samband þegar hún kæmi. OG VITI MENN!!!! Ég fékk símtal frá þeim ekki svo all löngu síðar og var ég látin vita að þarna væri eitt stykki geisladrif sem beið mín. –Þetta er fólk sem stendur við orð sín.. EKKI SEGJAST ÆTLA AÐ HRINGJA EF ÞÚ TREYSTIR ÞÉR EKKI TIL AÐ STANDA VIÐ ÞAÐ!!! Regla nr. 1, 2 og 3!
Ég legg til að þið gerið eitthvað í þessu með þjónustuna ykkar og það fljótt!
Svo er ég einnig með vinsamlega ábendingu varðandi síðuna ykkar. Þetta er hreint og beint lakasta heimasíða nokkurrar tölvuverslunar EVER! Hm.. hvað ætli gerist þegar ég ýti á hnappinn "þjónusta" ha? Var ég ekki á þessari síðu? Það nefnilega gerir ekkert nema að loada forsíðuna aftur!
Ég er þá að meina efri takkann ekki þann sem er vinstramegin því það er vísindalega sannað að fólk skoðar alltaf fyrst vinstramegin, því næst efsta hlutann og síðast megin mál síðunnar. En ALLRA síðast þar sem þið eruð með "HINN" þjónustu hnappinn. Þið vitið, þann sem actually virkar! (Ég viðurkenni reyndar að síðan hefur skánað örlítið síðastliðna mánuði en samt er hún ein sú alversta sem maður getur lent í að þurfa að afla sér upplýsinga á).
Hvað er svo málið með það að bjóða viðskiptavinum ykkar stýrikerfi á íslensku ef þið getið ekki einu sinni sett upp almennilega vörusíðu á íslensku á netinu. Það að vísa alltaf á apple.com síður er afar slappt. Verslun sem er jafn erfitt að ná til í gegnum síma, eins og raun ber vitni hjá ykkur, ætti að hafa GÓÐA heimasíðu með ÖLLUM helstu upplýsingum á íslensku og verð í krónum á vörunum o.s.frv. Treystið mér, það myndi spara símalínurnar ykkar heilmikið! (svo ekki sé talað um inneign viðskiptavina).
Ég get hiklaust sagt ykkur það að ef þetta væri annarskonar, ódýrari varningur sem væri til sölu hjá ykkur og þið mynduð bjóða sömu þjónustu þá væri apple búðin vafalaust farin á hausinn.
Að auki, annað varðandi upplýsinga nálgun, þá tala flestir um þjónustu og verkstæði sem aðskilinn hlut, en á síðunni ykkar er símanúmerið á verkstæðinu undir þjónusta. Þjónusta er það sem ég myndi hringja í ef ég ætti í vandræðum með að setja eitthvað upp, þyrfti að vita hvernig ætti að nálgast eitthvað forrit eða hvar ég finndi eitthvað í nýju vélinni minni. Hinsvegar er verkstæðið eitthvað sem maður hringir í ef maður er sannfærður um að vélin eða varan sé biluð.
Ekki leyfa Tandra (gaurnum í afgreiðslunni á verkstæðinu) að segja viðskiptavinum ykkar að hluturinn verði kominn í lag á morgun! Hann veit vel að það er ekki satt og þá á maður ekki að segja það.
Ég fæ nóg skítkast frá krökkunum í skólanum með það að ég sé að reyna að vera með "epli" í tölvunarfræði námi í háskóla. Enn fremur, það eina sem mér finnst þið gera með þessari lélegu, eða ætti maður kannski að segja "skorti á" þjónustu og illa uppsettri síðu er að sverta "orð" apple almennt. Fólk heldur að vélin sé "alltaf biluð" því það er aldrei gert við hana, það tekur eftir því að maður nær aldrei til ykkar í gegn um síma og þarf að eyða allri inneigninni sinni í að vera á BIÐ. Í guðana bænum það er skárra að það hringi út þegar það er mikið að gera heldur en að hanga á bið NEMA þið látið mann vita nr. hvað maður er í röðinni. Það kúka ekki allir peningum, sérstaklega ekki fátækir námsmenn sem eru viðskiptavinir ykkar O_o. Einnig sér fólk að þegar maður reynir að senda ykkur e-mail og spyrja um statusinn á viðgerðinni fær maður bara eitthvað þvílíkt bull til baka.
Frændi minn hefur verið diggur macintosh maður síðan ég man eftir mér og hann smitaði mig með powerbookinni sinni. Ég smitaði pabba minn (sem keypti nýja iMacinn), hann smitaði kærustuna sína (sem keypti einnig iMac) einnig tókst pabba að smita pabba sinn (sem keypti nýja PowerMac G5!). Smitið hélt áftam og smitaði ég annan frænda minn (sem átti iBook) og einnig vin minn (sem keypti líka iBook) og loks frænku mína (sem skartar nýja duel core PowerMacanum í stofunni hjá sér í dag). Að ónefndum ipodum sem familian og vinir hafa keypt (ég og frændi minn eigum enn elstu útgáfuna af iPod 15 og 20GB, þessir sem voru alveg hvítir) -Ég held hreinlega að ég ætti að vera á sölulaunum hjá ykkur :D eða að minnsta kosti að ég ætti skilið ALMENNILEGA þjónustu frá þessu blessaða fyrirtæki ykkar! Ég er í námi og það er ekkert grín að missa ÖLL námsgögn í lengri tíma, þið hljótið að skilja það.
Ég ætla að gefa apple á íslandi einn sjens í viðbót og ef ég brenni mig enn og aftur er ég hætt að vera ykkar talsmaður og að mæla með vörum frá apple því það er einfaldlega of mikið vesen að vera bundin ykkar þjónustu og verkstæði!
"Bráðum verður eplið rotið ... þá mun ég ekki kæra mig um það lengur."
Kveðja,
MargSvikinn viðskiptavinur!